SÚPER NACHOS MEÐ KALKÚNAHAKKI
- Jan 1
- 1 min read
Súper nachos með kalkúnahakki, svörtum baunum, ostasósu, salsasósu, avókadó og vorlauk. YUM hvað þessi réttur er góður og fljótlegur. Ég notaði tortilla flögur, ostasósu og salsasósu frá Mission sem er allt alveg dásamlega bragðgott. Kalkúnahakkið kemur líka skemmtilega á óvart og passar mjög vel í þennan rétt.

Fyrir 4
600 g kalkúnahakk (fæst frosið í helstu matvöruverslunum)
2 hvítlauksrif, pressuð eða rifin
1 lítill laukur, smátt skorinn
Ólífuolía til steikingar
Krydd: 1 tsk reykt papriku krydd, 1 tsk laukduft, 1 tsk cumin1 tsk salt, ½ tsk pipar, ½ tsk chili duft
1 salsasósa frá Mission
½ poki Mission tortilla flögur
2 dl svartar baunir
1 ostasósa frá Mission
3 tómatar
2 avókadó
3 vorlaukar
Ferskur kóríander
Sýrður rjómi
Aðferð
Byrjið á því að stekja lauk upp úr ólífuolíu. Þegar hann hefur aðeins mýkst þá bætið þið við hvítlauk og kalkúnahakki.
Kryddið með reyktri papriku, laukdufti, cumin, salti, pipar og chili dufti og steikið þar til kalkúnahakkið er eldað í gegn. Hrærið salsasósunni útí í lokin.
Dreifið tortillaflögunum í eldfast form. Því næst kemur kalkúnahakkið yfir ásamt svörtum baunum.
Dreifið yfir ostasósu eftir smekk og smátt söxuðum tómötum.
Bakið inn í ofni við 180°í 12-15 mínútur.
Toppið réttinn með avókadósneiðum, smátt skornum vorlauk og kóríander. Berið fram með sýrðum rjóma og ostasósunni og njótið.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes














Comments