FYLLTAR KJÚKLINGABRINGUR MEÐ RJÓMAOSTI & JALAPENO
- Jan 2
- 1 min read
Kjúklingabringur fylltar með rjómaosti, cheddar osti, fersku jalapeno og Jalapeno Tabasco sósu. Fyrir þá sem vilja ekki hafa þetta of sterkt þá er gott að minnka aðeins magnið af jalapeno og Tabasco sósunni. Mér finnst samt alveg ótrúlega gott þegar þetta rífur aðeins í og næst ætla ég að bæta aðeins meiri jalapeno í fyllinguna.

Fyrir 4 4 afþýddar kjúklingabringur frá Rose Poultry (1 poki) 200 g Light Philadelphia rjómaostur (1 pkn) 1 msk ferskur jalapeno, smátt skorinn 1 dl rifinn cheddar ostur + smá aukalega til að strá yfir kjúklinginn 1-2 tsk Tabasco jalapeno sósa 1 dl rifinn cheddar ostur
Aðferð
Byrjið á því að hræra saman rjómaosti, rifnum cheddar osti, ferskum jalapeno, Tabasco sósu, salti og pipar.
Snyrtið kjúklingabringurnar og skerið gat í miðjuna á þeim þannig að úr verði vasi.
Fyllið bringurnar með rjómaostafyllingunni (gott að nota skeið).
Leggið þær í eldfast mót. Saltið og piprið þær og dreifið rifnum cheddar osti yfir eftir smekk.
Bakið í 40 mínútur við 190°C eða þar til þær eru eldaðar. Gott að bera fram með sætum kartöflum eða kartöflubátum og fersku salati.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes









Comments