GRILLUÐ BLEIKJA MEÐ CAPERS SMJÖRI, STEINSELJU & SÍTRÓNU
- Jul 30
- 2 min read
Þessi grillaða bleikja er einn af þessum réttum sem ég geri aftur og aftur. Smjör, capers, hvítlaukur og sítróna gefa fiskinum ótrúlega gott bragð og með grilluðum kartöflum og kaldri sósu verður þetta einföld en dásamleg máltíð.

700 g bleikjuflök frá Fiskverzlun Hafliða 70 g mjúkt smjör
2 msk capers frá Gestus
2 hvítlauksrif, pressuð
3 msk fersk steinselja, smátt söxuð
½ tsk flögusalt
¼ tsk nýmalaður svartur pipar
Sítróna, skorin í þunnar sneiðar Kartöflur 600–700 g kartöflur 2 msk ólífuolía
1 tsk flögusalt
½ tsk svartur pipar
1 tsk hvítlauksduft
1 tsk þurrkað timían
Köld sósa
180 g sýrður rjómi, ein dós
3 msk fersk steinselja, smátt söxuð
1 tsk hvítlaukduft
1 tsk laukduft
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð
Hitið grillið í meðalhita (180–200°C).
Blandið saman smjöri, capers, hvítlauk og steinselju.
Leggið bökunarpappír ofan á álpappír.
Leggið bleikjuflökin á bökunarpappírinn, saltið og piprið og dreifið smjörblöndunni jafnt yfir.
Raðið sítrónusneiðunum yfir fiskinn.
Brjótið álpappírinn þannig að hann myndar bakka.
Grillið í 10-12 mínútur með lokið á grillinu. Berið fram með kartöflum, köldu sósunni, fersku salati og njótið.
Kartöflur
Skerið kartöflurnar í um ½–1 cm þykkar sneiðar.
Veltið þeim upp úr olíu og kryddið með salti, pipar, hvítlauksdufti og timían.
Setjið kartöflurnar í álbakka eða á stórt stykki af álpappír og lokið lauslega yfir.
Grillið við meðalhita í 20-30 mínútur og hrærið eða snúið kartöflunum 2–3 sinnum á meðan.
Opnið álpappírinn eða takið lokið af álbakkanum síðustu 5–10 mínúturnar svo kartöflurnar fái fallegan lit.
Köld sósa
Blandið öllum hráefnunum saman og smakkið til með salti og pipar. Geymið í kæli þar til borið er fram.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Krónuna



Comments