top of page

RJÓMALAGAÐ FUSILLI MEÐ SVEPPUM

  • Feb 8
  • 1 min read

Einfalt er oft best. Þessi uppskrift er dásamleg fyrir alla sveppaunnendur og er fullkominn réttur fyrir jólaannríkið. Hún er einföld, fljótleg og ótrúlega ljúffeng – passar bæði á virkum dögum og þegar þú vilt gleðja fjölskyldu eða gesti í desember. Það er einnig gott að  bæta smávegis af rifnum sítrónubörk fyrir ferskleika eða smá chiliflögum fyrir kryddaðri útgáfu. Mæli með að bera fram með góðu hvítvínsglasi og njóta vel í aðventunni.

250 g De Cecco Fusilli pasta 2 msk ólífuolía 1 dl smátt skorinn laukur 150 g sveppir, skornir 150 g kastaníusveppir, skornir ½ dl hvítvín 2 msk smjör 2 hvítlauksrif, pressað 2 dl rjómi 1 dl rifinn parmesanostur Salt og pipar eftir smekk 2 msk fersk steinselja, smátt skorin

Toppa með:

Klettasalat Parmesanostur

Aðferð

  1. Sjóðið fusilli í potti með söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu, þar til það er „al dente“. Sigtið vatnið frá en geymið ½ dl af pastavatninu.

  2. Hitið ólífuolíu á stórri pönnu við meðalháan hita. Bætið fínsöxuðum lauk á pönnuna og steikið þar til hann verður glær.

  3. Setjið sneidda sveppi út í og eldið þar til þeir sleppa safanum sínum og hann gufar upp.

  4. Bætið smjöri og pressuðum hvítlauk saman við. Eldið þar til smjörið er bráðið.

  5. Hellið rjómanum út í ásamt parmesan ostinum og kryddið með salti og svörtum pipar. Látið malla í um 5 mínútur.

  6. Setjið fusilli út í og blandið öllu vel saman. Bætið pastavatni smám saman við þar til sósan er silkimjúk og kremuð.

  7. Berið fram með klettasalati og sneiðum eða rifnum parmesanosti.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes


Comments


bottom of page