top of page

FLJÓTLEGT SÍTRÓNUPASTA

  • Jan 1
  • 1 min read

Einfalt, fljótlegt og ofur gómsætt sítrónupasta sem klikkar ekki. Spaghetti með Philadelphia rjómaosti, sítrónu, sveppum, parmesan osti, hvítlauk og fleira góðu. Ég elska svona pastarétti sem eru fljótlegir en samt svo æðislega góðir en það tekur um 20-30 mínútur að útbúa þennan. Passar afar vel með ísköldu hvítvínsglasi og hvítlauksbrauði.

Fyrir 3-4 300-400 g spaghetti frá De cecco Ólífuolía 3 skarlottulaukar 2 hvítlauksrif, pressuð 150 g kastaníusveppir 150 g venjulegir sveppir 100 g spínat 1 pkn Philadelphia rjómaostur 1 sítróna 1 dl steinselja, smátt söxuð 1 dl parmigiano reggiano, rifinn Salt & pipar

Aðferð

  1. Byrjið á því að sjóða spaghetti samkvæmt leiðbeiningum.

  2. Á meðan útbúið þið sósuna. Skerið sveppi og skarlottulauk og rífið sítrónubörkinn.

  3. Steikið skarlottulaukinn og hvítlaukinn upp úr ólífuolíu. Bætið sveppunum við og steikið þar til þeir hafa aðeins mýkst. Því næst bætið þið við spínati og blandið saman.

  4. Hrærið rjómaostinum út í ásamt safa úr einni sítrónu, sítrónuberki, steinselju og parmigiano. Saltið og piprið eftir smekk.

  5. Blandið spaghettinu saman við sósuna og berið fram með rifnum parmigiano og steinselju.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page