RJÓMALAGAÐ PASTA MEÐ SÓLÞURRKUÐUM TÓMÖTUM
- Feb 8
- 2 min read
Þessi réttur er einfaldur og dásamlega góður, fullkominn í haust þegar manni langar í eitthvað djúsí og gott. Rjómalagað pasta með sólþurrkuðum tómötum, sveppum og kjúklingi. Rétturinn er einnig ljúffengur án kjúklings, ef þú vilt léttari útgáfu. Passar fullkomlega með rauðvínsglasi og fersku salati.

Fyrir 3-4
300-400 g De Cecco penne rigate pasta
3 bringur Kjúklingur + 1 tsk salt + 1/4 tsk pipar
Ólífuolía
1 Laukur
3-4 hvítlauksrif
200 g Sveppir
1 dl sólþurrkaðir tómatar
250 g rjómi
1 tsk kjúklingakraftur
Salt & pipar eftir smekk
1 dl parmesan ostur
Pastavatn eftir smekk
2 msk fersk basilíka + til að toppa réttinn með
Aðferð:
Skerið kjúklingabringurnar í bita.
Skerið laukinn, hvítlaukinn, sveppina og sólþurrkuðu tómatana.
Hitið pönnu á meðalhita með smá olíu og steikið kjúklingabitana þar til þeir eru eldaðir í gegn. Kryddið með salti og pipar. Takið þá af pönnunni og leggið til hliðar.
Á sömu pönnu, bætið við smá olíu og steikið laukinn þar til hann er mjúkur og glær. Bætið hvítlauknum og sveppunum við og steikið þar til sveppirnir hafa losað sig við vökvann og eru fallega gullinbrúnir.
Bætið sólþurrkuðum tómötum út á pönnuna og hellið rjómanum yfir. Bætið parmesan osti saman við, kjúklingakrafti og kryddið með salt og pipar eftir smekk. Látið malla í 3-4 mínútur þar til sósan hefur þykknað örlítið.
Bætið kjúklingabitunum aftur á pönnuna og hrærið vel saman við sósuna. Bætið pastavatni saman við sósuna ef að þið viljið þynna hana aðeins.
Á meðan sósan mallar, sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum. Hellið vatninu frá og blandið pastanu saman við sósuna.
Rífið ferskan parmesan ost yfir pastaréttinn, toppið með ferskri basiliku og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes







Comments