KJÚKLINGUR MEÐ PARMASKINKU & MOZZARELLA
- Jan 2
- 1 min read
Ég sá þessa girnilegu uppskrift frá Donna Hay og ég varð bara að prófa að útbúa mína útgáfu og vá hvað þetta er gómsætur réttur! Kjúklingabringur með ferskum mozzarella og basilíku, vafðar inní parmaskinku og þaktar með panko- og parmesan hjúpi. Það getur bara ekki klikkað. Fullkominn matur til að gera vel við sig. Gott að bera fram með kartöflum, salati og ísköldu rósavíni.

Fyrir fjóra 4 kjúklingabringur frá Rose Poultry 16 basilíku laufblöð 8 sneiðar ferskur mozzarella Pipar 8 sneiðar parmaskinka 3 dl panko raspur 1,5 dl parmigiano reggiano 1/2 dl steinselja, smátt skorin Ólífuolía
Aðferð
Skerið kjúklingabringurnar til helminga.
Dreifið kjúklingnum á bökunarplötu þakta bökunarpappír.
Setjið tvö basilíkulaufblöð á hverja sneið og eina sneið af mozzarella. Kryddið með pipar eftir smekk.
Vefjið parmaskinkunni utan um kjúklinginn.
Blandið saman panko raspi, parmesan og smátt saxaðri steinselju í skál.
Dreifið raspinum ofan á kjúklinginn og þrýstið aðeins ofan á.
Dreifið vel af ólífuolíu yfir kjúklinginn og bakið í 20-30 mínútur við 180°C eða þar kjúklingurinn er bakaður í gegn.
Berið fram með kartöflubátum og njótið í botn.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



















Comments