top of page

TÓMATSÚPA MEÐ FERSKUM MOZZARELLA & BASILIKU

  • Jan 1
  • 1 min read

Ljúffengt tómatsúpa sem iljar manni. Hún inniheldur gulrætur sem gerir súpuna einstaklega góða. Toppurinn yfir i-ið er að rífa ferskan mozzarella og dreifa yfir súpuna rétt áður en þið borðið hana. Svakalega gott. Mæli með að bera þetta fram með góðu brauði.

Uppskrift fyrir 3-4 1/2 laukur 4-5 gulrætur, skornar í bita 400 g plómutómatar í dós 2 msk tómatpúrra 2 hvítlauksrif 2 tsk grænmetiskraftur 4 dl vatn 1-2 dl vatn (meira vatn) 1 ½ dl rjómi Salt og pipar Cayenne pipar

Toppa með: Ólífuolíu Fersk basilíka Ferskur mozzarella

Aðferð

  1. Steikið lauk upp úr ólífuolíu. Bætið svo gulrótum og hvítlauki saman við.

  2. Hellið tómötum úr dós ásamt öllum safanum ofan í, tómatpúrru, 4 dl vatni og grænmetiskrafti. Hrærið og látið malla saman í 30-40 mínútur á vægum hita.

  3. Blandið allri súpunni vel saman með töfrasprota. Þá er hún orðin vel þykk. Þynnið súpuna með 1-2 dl vatni og rjóma. Kryddið með cayenne, salti og pipar.

  4. Berið fram með ólífuolíu, ferskri basilíku og ferskum mozzarella.

Ólífuolía með basilíku

  1. Blandið saman með töfrasprota ólífuolíu, basilíku og smá salt. Hver og einn dreifir svo yfir sína súpuskál þegar þið berið hana fram.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page