PÍTA MEÐ HUMRI, BEIKONI & BASIL SÓSU
- Jan 1
- 1 min read
Humar og beikon í brauði með guðdómlegri sósu, þarf eitthvað að segja meira? Innblásturinn að uppskriftinni er samloka sem fékkst á Rabbarbarnum en sá staður er því miður hættur og verður sárt saknað.

Fyrir 3-4 Pítubrauð frá Hatting 500 g skelflettur humar, frosinn 2-3 msk fersk steinselja, söxuð 2 lítil hvítlauksrif, pressuð 1 msk ferskur sítrónusafi 1-2 msk Ólífuolía Salt og pipar Smjör til steikingar 8-12 sneiðar af beikoni (eftir smekk) Kokteiltómatar, skornir í sneiðar Klettasalat
Basil sósa 2-3 dl fersk basilika 4 msk majónes 2 msk sýrður rjómi 1 msk hunang 1-2 msk safi úr ferskri sítrónu Salt og pipar
Aðferð
Veltið humrinum uppúr steinselju, hvítlauk, sítrónusafa, ólífuolíu, salti og pipar.
Bakið beikonið í 8-10 mínútur við 200°C eða þar til beikonið er orðið vel stökkt.
Á meðan beikonið er að bakast þá steikið þið humarinn uppúr smjöri, tekur örfáar mínútur.
Hitið Hatting pítubrauðið í ofninum eða í brauðristinni.
Útbúið basil sósuna. Ég blanda öllu saman með töfrasprota en það er ekkert mál að saxa basilikuna smátt og blanda öllu saman með skeið.
Fyllið pítubrauðið með sósunni, klettasalati, tómötum, beikonsneiðum og humrinum eftir smekk.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Hatting



Comments