PÍTA MEÐ KJÚKLINGI
- Jan 1
- 1 min read
Hér kemur uppskrift að ó svo ljúffengri pítu sem ég gerði í samstarfi við Hatting. Tilvalinn sem fljótlegur réttur á virkum degi! Það er mjög þægilegt að eiga frosið pítubrauð frá Hatting í frystinum. Ég gríp það oft í hversdagsleikanum þegar það er mikið að gera og mig langar að gera eitthvað fljótlegt og gott.

Uppskrift fyrir 1 Pítubrauð frá Hatting Smá rauðkál, skorið í þunnar ræmur Smá hvítkál, skorið í þunnar ræmur 1-2 dl rifinn kjúklingur 1/2 avocado, smátt skorið Tómatar, smátt skornir Rauðlaukur, smátt skorinn Fetakubbur, stappaður Toppað með radísuspírum Sósa 3 msk majónes 2 msk sýrður rjómi 2 msk kóríander, smátt skorinn 2 tsk safi úr lime 2 msk jalapeno úr krukku, smátt skorinn (má sleppa) Salt og pipar
Aðferð:
Hitið pítubrauðið í ofni eða einfaldlega setjið í brauðristina.
Hrærið kálinu, kjúklingnum, avocado-inu, tómötunum, rauðlauknum, fetaostinum og sósunni saman í skál.
Skerið gat á pítubrauðið og fyllið með blöndunni. Einfaldara gerist það ekki.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Hatting



Comments