top of page

SPICY JARÐARBERJA- & BASIL SPRITZ

  • 1 day ago
  • 1 min read

Þessi áfengislausi kokteill er ferskur, örlítið sætur með mildum hita frá chilihunangi og fullkominn með sumarlegu antipasto rétti eins og t.d. þessum. Crodo Lemon Soda gefur honum léttan sítruskeim og fallega freyðingu.

Hráefni (2 glös)

4–6 jarðarber

12–16 fersk basilikulauf

30 ml ferskur sítrónusafi

60 ml kalt vatn

1½ msk chilihunang frá Olifa

Klakar

Crodo Lemon Soda eftir smekk


Aðferð

  1. Setjið jarðarber, basiliku, sítrónusafa, vatn og chilihunang í kokteilahristara.

  2. Stappið hráefnin vel saman svo bragðið losni úr jarðarberjunum og basilikunni.

  3. Bætið við klökum og hristið vel í 15–20 sekúndur.

  4. Sigtið yfir í tvö glös fyllt af klökum.

  5. Toppið með Crodo Lemon Soda og skreytið með ferskri basiliku og sítrónusneið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Krónuna


Comments


bottom of page