top of page

OFNBAKAÐ RISOTTO

  • Apr 20
  • 1 min read

Eitt það þægilegasta sem ég geri þessa dagana. Ofnbakað risotto sem sér um sig sjálft á meðan kjúklingurinn eldast við hliðina. Svo auðveld og góð leið til að elda risotto. Ofsalega gott með tómat, burrata, basiliku og parmesan. Klikkar ekki!


Uppskrift fyrir 4

3 dl arborio risgrjón

1 stór laukur, smátt saxaður

3 hvítlauksrif, pressuð

4 msk smjör

1 stór krukka tómata- og basilíkusósa (ca. 500–600 g)

6 dl kjúklingasoð

2 dl rifinn parmesan

Kjúklingakraftur

Salt og pipar

1/2 dl fersk basilika, söxuð

Kjúklingur:

700–900 g úrbeinuð kjúklingalæri

Ólífuolía

Salt og pipar

(má bæta paprikudufti eða ítölsku kryddi)

Til að toppa:

1 burrata kúla

Fersk basilika


Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C.

  2. Hitið 2 msk smjör í potti eða pönnu sem má fara í ofn. Steikið laukinn við meðalhita þar til hann verður mjúkur og glær.

  3. Bætið hvítlauk út í og steikið í um 1 mínútu.

  4. Setjið hrísgrjónin út í og hrærið í 1–2 mín.

  5. Hellið tómatasósu og kjúklingasoði út í, blandið vel.

  6. Setjið smjörklípur yfir, lokið pottinum (eða setjið álpappír yfir) og bakið í ofni í 30-35 mínútur.

  7. Á meðan: setjið kjúklingalærin í eldfast mót, veltið upp úr ólífuolíu, salti og pipar og bakið í 30–40 mín þar til þau eru elduð og fallega gyllt.

  8. Takið risotto úr ofni, hrærið vel og bætið parmesan, 2 msk smjöri og ferskri basiliku út í.

  9. Stillið ofninn á grill, hækkið hitann í 200°C og haldið áfram að baka kjúklinginn í 5-7 mínútur.

  10. Berið fram með kjúklingnum, rífið burrata yfir og toppið með ferskri basiliku.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Þú færð öll hráefnin í Krónunni Samstarf


Comments


bottom of page