HOLLT DÖÐLUNAMMI „VIRAL DATE BARK“
- Jan 3
- 1 min read
Þetta döðlunammi fór algjörlega „viral“ á samfélagsmiðlunum. Ég varð að prófa að útbúa þetta sjálf og notaði ég aðeins fjögur innihaldsefni: Whole Earth hnetusmjörið, ferskar döðlur, 70% súkkulaði og saltaðar pistasíur. Pistasíurnar setja punktinn yfir-ið. Svo einfalt, gott og geggjað að eiga til í frystinum ef mann langar í eitthvað sætt! Ef þið hafið ekki smakkað þá mæli ég með.

30 ferskar döðlur Whole Earth hnetusmjör í túpu eftir smekk 100 g 70% súkkulaði ½ dl pistasíur, gróft skornar
Aðferð
Byrjið á því að taka steinana úr döðlunum.
Setjið bökunarpappír í bökunarform sem má fara í frystinn, dreifið döðlunum og þjappið þeim saman með glasi eða notið hendurnar þannig að þær mynda botn.
Hristið hnetusmjörið vel og sprautið yfir döðlurnar eftir smekk. Dreifið úr því með skeið.
Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði, dreifið yfir hnetusmjörið og stráið pistasíum yfir.
Setjið í frysti í klst, skerið í bita og njótið. Geymið svo bitana í frystinum.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Heilsu

















Comments