HAUSTLEGT HNETUMIX
- Oct 9, 2025
- 1 min read
Hollustu nammi sem er unaðslega gott, sykurlaust og krönsí. Pekanhnetur, möndlur, pistasíur og graskersfræ í pumpkin spice kryddblöndu og stevíu sírópi. Nammi! Ég elska að eiga eitthvað svona sem er hollt og gott til að fá mér sem millimál með kaffinu. Mæli mikið með!

2 dl pekanhnetur
1½ dl möndlur
1 dl pistasíur
1 dl graskersfræ
½ dl ólífuolía
1 dl stevíu síróp
1 tsk kanill
¼ tsk múskat
¼ tsk negulnaglar, duft
¼ tsk engifer, duft
½ tsk saltflögur
Aðferð
Blandið saman kanil, múskati, negulnöglum, engifer og salti.
Hrærið út í ólífuolíu og sírópi.
Blandið pekanhnetum, möndlum, pistasíum og graskersfræjum saman í skál og hrærið kryddblöndunni saman við.
Drefið hnetublöndunni á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 15-20 mínútur við 190°C. Hærið í blöndunni reglulega og passið að hún brenni ekki.
Geymið í lokuði íláti og njótið.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti





Comments