GRANÓLA MEÐ KÓKOS & MÖNDLUSMJÖRI
- Sep 16, 2025
- 1 min read
Heimagert granóla er svo gott og hér gerði ég uppskrift af slíku í samstarfi við Innnes. Þetta granóla inniheldur hafra, möndlur, pekanhnetur, kókosflögur ásamt möndlusmjöri með kókos og döðlum, kókosolíu og hlynsírópi. Ég notaði Rapunzel vörurnar í uppskriftina en þær eru mjög vandaðar og allar lífrænt ræktaðar. Þær fást m.a. í Nettó og Fjarðarkaupum. Möndlusmjörið frá þeim með kókos og döðlum er í algjöru uppáhaldi hjá mér og það er mjög gott að dreifa smá yfir gríska jógúrtið eða setja í boost. Mæli með!
5 dl grófir hafrar frá Rapunzel 2 dl möndlur frá Rapunzel 2 dl pekanhnetur 1 dl kókoflögur frá Rapunzel 3 msk möndlusmjör með kókos og döðlum frá Rapunzel 2 msk kókosolía frá Rapunzel 3 msk hlynsíróp frá Rapunzel
Aðferð
Skerið pekanhnetur og möndlur gróft.
Blandið saman við tröllahafrana.
Bræðið kókosolíu, möndlusmjör og hlynsíróp í potti.
Hellið blöndunni út í haframjölið og blandið vel saman með sleif/skeið.
Dreifið blöndunni á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið við 180°C í 20-25 mínútur. Hrærið reglulega í blöndunni og passið að hún brenni ekki.
Blandið kókosflögunum saman við í lokin. Geymið í lokuðu íláti.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments