JARÐARBERJA CHIA GRAUTUR
- Oct 8, 2025
- 1 min read
Fullkominn og einfaldur morgunmatur sem er þægilegur að útbúa daginn áður og hafa tilbúinn um morguninn. Gott að taka þetta með út í daginn og borða þegar hentar. Algjört nammi!

Fyrir tvo skammta: 2,5 dl hrein gísk jógúrt 3 msk chia fræ 1-2 msk stevíu síróp, hunang eða önnur sæta smátt skorin jarðarber frá Driscoll’s Toppa með:
Nóg af hnetusmjöri Ferskum jarðarberjum Hampfræ eftir smekk
Aðferð
1. Blandið saman grískri jógúrt, chia fræjum, stevíu sírópi eða hunangi og smátt skornum jarðarberjum í skál.
2. Hrærið vel saman og skiptið í tvær krukkur eða box með loki.
3. Dreifið vef af hnetusmjöri yfir. Einnig er gott að bæta við ferskum jarðarberjum og hampfræjum, en það er algjörlega valfrjálst.
4. Geymið grautinn yfir nótt í kæli og njótið daginn eftir. Grauturinn geymist í 2-3 daga með ferskum jarðarberjum.

Njótið vel! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars TIKTOK: @hildurruti



Comments