SÚKKULAÐI GRANÓLA BITAR
- Oct 2, 2025
- 1 min read
Fljótlegir og gómsætir granóla bitar sem innihalda aðeins fjögur hráefni. Þeir innihalda haframjöl, hlynsíróp, súkkulaði og súkkulaðismjör.

2 dl súkkulaðismjör með heslinhnetum frá So Vegan So Fine
1 dl hlynsíróp frá Rapunzel
6 dl haframjöl
80 g 70% súkkulaði frá Rapunzel
Aðferð
Hitið ofninn í 190°C með blæstri.
Blandið saman súkkulaðiálegginu og sírópinu í skál.
Fínmalið 2 dl af haframjölinu í blandara eða matvinnsluvél.
Blandið fínmalaða haframjölinu ásamt restinni af haframjölinu saman við súkkulaðiblönduna. Hrærið vel saman.
Smátt skerið súkkulaðið og bætið því saman við.
Dreifið og þjappið blöndunni í lítið eldfast form sem þið þekið með bökunarpappír og bakið í 16-20 mínútur.
Leyfið þessu að kólna aðeins áður en þið skerið í bita eftir smekk og njótið.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti








Comments