HAFRAKLATTAR MEÐ RJÓMASÚKKULAÐI
- Jan 3
- 1 min read
Þessir hafraklattar eru mjög einfaldir og ljúffengir og eru vinsælir á mínu heimili. Klattarnir eru dásamlega góðir með ískaldri mjólk eða rjúkandi heitu kaffi. Rjómasúkkulaðið gerir hafraklattana extra góða en einnig er hægt að setja eitthvað annað í staðinn t.d. rúsínur eða suðusúkkulaði.

60 g gróft haframjöl 70 g spelt 30 g kókosmjöl 1 tsk lyftiduft 1 tsk kanill 4 msk púðursykur Salt 1 tsk vanilludropar 1 egg 120 g smjör 2 dl rjómasúkkulaðidropar eða saxað rjómasúkkulaði
Aðferð
Bræðið smjör og passið að það verði ekki of heitt.
Hrærið öllu þurrefninu saman og bætið svo vanilludropum, eggi og smjöri við.
Hrærið að lokum súkkulaðidropunum saman við deigið.
Notið matskeið til að gera kúlur úr deiginu og raðið á smjörpappír.
Bakið við 180°C í 8-10 mínútur eða þar til klattarnir verða gylltir.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments