top of page
Search


SÚKKULAÐIBITASMÁKÖKUR MEÐ TAHINI
Þessar smákökur eru í hollari kantinum og koma svo sannarlega á óvart! Þær eru einfaldar í undirbúningi og passa einstaklega vel með kaffibolla eða ísköldu mjólkurglasi. Tahini eða sesamsmjör, sem er eitt af innihaldsefnunum, er m.a. ríkt af kalki og ýmsum steinefnum og gerir kökurnar næringarríkari fyrir vikið. Börnin elska þær og ég elska að gefa þeim eitthvað sætt sem er líka hollt og gott! Tahini-ið, hrásykurinn, hlynsírópið og súkkulaðið er frá þýska fyrirtækinu Rapunzel


FALAFEL MEÐ TAHINI SÓSU
Hér kemur ein dásamlega holl, góð og einföld vegan uppskrift. Falafel með smjörbaunum og grænum baunum borið fram með kínóa, avókadó, agúrku, fræjum úr granatelpi, steinselju/kóríander og tahini sósu. Ég setti falafel bollurnar í pítubrauð fyrir krakkana og þeim fannst það mjög gott. 1 dós smjörbaunir, 400 g 2 ½ dl frosnar grænar baunir, afþýddar 1 dl steinselja eða kóríander ½ dl spelt ½ dl sesamfræ + auka til að velta bollunum upp úr 1 hvítlauksrif 1 tsk cumin Salt og pipar
bottom of page