top of page

FALAFEL MEÐ TAHINI SÓSU

  • Jan 1
  • 1 min read

Hér kemur ein dásamlega holl, góð og einföld vegan uppskrift. Falafel með smjörbaunum og grænum baunum borið fram með kínóa, avókadó, agúrku, fræjum úr granatelpi, steinselju/kóríander og tahini sósu. Ég setti falafel bollurnar í pítubrauð fyrir krakkana og þeim fannst það mjög gott.

1 dós smjörbaunir, 400 g 2 ½ dl frosnar grænar baunir, afþýddar 1 dl steinselja eða kóríander ½ dl spelt ½ dl sesamfræ + auka til að velta bollunum upp úr 1 hvítlauksrif 1 tsk cumin Salt og pipar

Meðlæti Kínóa, eldað eftir leiðbeiningum eða keypt tilbúið Avókadó Agúrka Steinselja eða kóríander Granatepli, fræ

Sósa 3 msk tahini Safi úr ½ – 1 sítrónu Ca. 2 cm ferskur engifer, rifinn Vatn eftir smekk, til að þynna sósuna

Aðferð

  1. Byrjið á því að sigta vatnið frá smjörbaununum og afþýðið grænu baunirnar.

  2. Blandið saman baunum, steinselju eða kóríander, spelti, sesamfræjum, pressuðu hvítlauksrifi, cumin, salti og pipar í matvinnsluvél þar til þetta er orðið að einhversskonar deigi í útliti.

  3. Útbúið litlar bollur úr deiginu (ég notaði teskeið) og veltið þeim uppúr sesamfræjum (má sleppa).

  4. Raðið á smjörpappír í eldfast mót eða á ofnplötu og dreifið ólífuolíu yfir þær.

  5. Bakið þær í 18-20 mínútur við 200°C eða þar til þær eru orðnar aðeins gylltar.

  6. Blandið saman í sósuna. Bætið vatni eftir smekk til að þynna hana og hrærið vel.

  7. Raðið saman í skál eftir smekk: Kínóa, avókadó sneiðum, smátt skorinni agúrku, falafel bollum, fræjum úr granatepli, saxaðri steinselju eða kóríander og dreifið sósunni yfir. Einnig gott að bera fram með hummus.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page