top of page
Search


ÍSKAFFI MEÐ KÓKOSMJÓLK
Sumarlegt og ljúffengt ískaffi. Hann inniheldur kaffi, sykurlaust karamellusíróp, kókosmjólk og nóg af klökum. Það er algjör snilld að nota kókosmjólkina í drykkinn, hún gefur honum svo ljúft og gott bragð. Ég nota svo flóarann frá Sjöstrand til að kaldflóa mjólkina sem ég mæli með að þið prófið. Það er mjög gott og það kemur skemmtileg áferð á mjólkina en annars má alveg sleppa því að flóa mjólkina. Mæli með að þið prófið þennan drykk. Uppskrift gerir einn drykk 1-2 espresso


AFFOGATO
Affogato eftirréttakokteill er ómótstæðilega góður og ef þú ert kaffiunnandi þá áttu líklegast eftir að elska hann. Affogato er vinsæll ítalskur eftirréttur sem inniheldur espresso skot og ís. Hér kemur hann í fullorðinsbúningi og inniheldur kaffilíkjör og vodka og er toppaður með rifnu súkkulaði. Fyrir einn 30 ml espresso frá Sjöstrand (1 espresso skot) 5 cl kaffilíkjör 2 cl vodka 1 kúla vanilluís Rifið dökkt súkkulaði Aðferð Byrjið á því að útbúa eitt espresso skot í glas.


SVALANDI ESPRESSO TÓNIK
Hafið þið prófað kaffi með tónik og lime? Þetta er svo ljúffeng og einföld blanda sem kemur mikið á óvart. Ég útbjó eina slíka uppskrift í samstarfi við Sjöstrand sem ég mæli með að þið prófið. Sumarlegur og afar frískandi drykkur. Einn drykkur 1-2 espresso skot Sjöstrand nr.1 ½ dl tónik vatn 4-6 klakar 1 limebátur Aðferð Setjið klaka í glas og hellið tóniki ofan í. Útbúið 1-2 skot af espresso og hellið út í tónik vatnið. Kreystið safa úr limebáti. Skreytið með lime sneið og


LJÚFFENGUR KAFFI BOOST
Þessi drykkur er í miklu uppáhaldi þessa dagana. Ég elska að byrja daginn á þessum gómsæta kaffi boost drykk sem ég útbjó í samstarfi við Sjöstrand á Íslandi. Hann er svo orkuríkur og góður og hentar líka vel fyrir þá sem eru vegan. Ég nota tvöfalt espresso skot frá Sjöstrand, banana, döðlur, hnetusmjör, haframjöl, hampfræ, kakó og möndlumjólk. Þetta er í morgunmatinn hjá mér nokkra daga vikunnar og ég elska það. Þið verðið bara að prófa! Uppskrift gerir einn drykk 1-2 espres
bottom of page