FLJÓTLEGT SWISS MOCCA MEÐ CHILI OG KANIL
- Jan 1
- 1 min read
Swiss mocca er ljúfur kaffi- og súkkulaðidrykkur og hér er einföld uppskrift að honum. Ég nota klassískt Swiss Miss í drykkinn ásamt chili, kanil og að sjálfsögðu rjóma. Mæli með að útbúa venjulegt Swiss miss fyrir krakkana á meðan fullorðnir njóta Swiss mocca og þá eru allir glaðir. Mér finnst Swiss miss mjög bragðgott og frábært að setja útí kaffið, algjört nammi! Chili og kanill setur síðan punktinn yfir-ið og rífur aðeins í.

2 dl sterkt kaffi 3 msk Swiss Miss kakó 2 tsk kanill 1 ½ tsk hreint chili duft Þeyttur rjómi Toppa með súkkulaðispæni og chili sneið (má sleppa)
Aðferð
Byrjið á því að útbúa kryddblönduna. Blandið kanil og chili dufti saman í skál. Gott að geyma svo í krukku eða kryddstauk upp í skáp til að eiga.
Setjið Swiss miss í bolla og hellið heitu kaffi saman við. Hrærið vel saman þar til það leysist upp.
Að lokum toppið með þeyttum rjóma, stráið kanil-og chiliblöndunni yfir og njótið!

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti











Comments