top of page
Search


HEITUR HUNANGS- & HAFRA KOKTEILL
Hvað er betra en ljúffengur og heitur kokteill sem iljar manni kuldanum? Heit haframjólk með hunangi og kryddblöndu, viskí og Cointreau gerir þennan kokteil svo bragðgóðan og jólalegan. Smá appelsínukeimur, kryddaður og sætur kokteill. Mæli með að nota ikaffe haframjólkina frá Oatly í drykkinn. Hún freyðir svo vel og er bragðgóð. Ég nota mjólkurflóara til að flóa mjólkina en það er ekkert mál að flóa mjólkina í potti. Ekta drykkur til að útbúa þegar þið fáið gesti í heimsókn


FLJÓTLEGT SWISS MOCCA MEÐ CHILI OG KANIL
Swiss mocca er ljúfur kaffi- og súkkulaðidrykkur og hér er einföld uppskrift að honum. Ég nota klassískt Swiss Miss í drykkinn ásamt chili, kanil og að sjálfsögðu rjóma. Mæli með að útbúa venjulegt Swiss miss fyrir krakkana á meðan fullorðnir njóta Swiss mocca og þá eru allir glaðir. Mér finnst Swiss miss mjög bragðgott og frábært að setja útí kaffið, algjört nammi! Chili og kanill setur síðan punktinn yfir-ið og rífur aðeins í. 2 dl sterkt kaffi 3 msk Swiss Miss kakó 2 tsk


HÁTÍÐAR IRISH COFFEE
Það er eitthvað svo notalegt að fá sér heitan og ljúffengan drykk í skammdeginu þegar farið er að kólna úti. Irish coffee er þá sannarlega viðeigandi en hann er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hér kemur uppskrift að slíkum drykk í hátíðarbúningi en ég nota Fireball whiskey líkjör með heitu kanilbragði sem gerir drykkinn svo einstaklega ljúfan. Fyrir einn 6 cl Fireball líkjör 250 ml kaffi 2 tsk púðursykur Rjómi Súkkulaðispænir Kanill Aðferð Blandið saman púðursykri og kaffi í glas
bottom of page