JÓLA COSMO
- Jan 1
- 1 min read
Vá vá vá, hvað þessi kokteill er bragðgóður og jólalegur með góðri froðu. Cointreu, möndlulíkjör, trönuberjasafi, sykursóp, lime og eggjahvíta. Geggjað að skála í þessum yfir hátíðirnar.

2 kokteilar 10 cl trönuberjasafi 5 cl Cointreau 5 cl Amaretto Bols Amsterdam 4 cl sykursíróp 4 cl safi úr lime 1 egg (eggjahvíta) 2 kirsuber úr krukku
Aðferð
Hellið trönuberjasafa, Countreau, Amaretto, sykursírópi, limesafa og eggjahvítu í hristara og hristið í 10-15 sekúndur.
Bætið klökum saman við og hristið aftur í 10-15 sekúndur.
Hellið í falleg glös í gegnum sigti.
Þræðið kirsuber á pinna og skreytið glasið. Njótið vel.
Sykursíróp
Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.
Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti







Comments