top of page

WHISKEY SOUR

  • Jan 1
  • 1 min read

Klassískur whiskey sour klikkar ekki en hér kemur uppskriftin sem mér finnst best. Hann er í uppáhaldi hjá mér! Akkúrat rétt jafnvægi á milli sítrónu, sætu og viskís en svo er froðan algjört must!

1 kokteill 6 cl Jeam Beam Black viskí Nokkrir dropar angostura bitter (má sleppa) 3 cl safi úr sítrónu 3 cl sykursíróp 1 eggjahvíta Klakar Appelsínusneið


Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn


Aðferð

  1. Hellið viskí, safa úr sítrónu, sykursírópi og eggjahvítu í kokteilahristara og hristið þar til kokteilinn byrjar að freyða. Bætið klökum saman við og hristið vel.

  2. Hellið í glas í gegnum síuna og toppið með appelsínusneið. Mér finnst gott að setja klakana með.

Sykursíróp

  1. Setjið vatn og sykur í pott. 

  2. Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.

  3. Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.

Skál & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page