GRILLUÐ SMÁKAKA MEÐ KARAMELLUSÓSU
- Jan 3
- 1 min read
Grilluð smákaka með heitri karamellusósu og borin fram með ís og ferskum berjum. Það er frábær hugmynd að taka tilbúið deig í útileguna eða sumarbústaðinn og smella á grillið. Eina sem þarf er smákökudeig frá Kötlu, álbakki og bökunarpappír. Svo er hægt að prófa sig áfram með meðlæti, rjómi, ís, ber, ávextir o.s.frv.

1 Súkkulaði smákökudeig frá Kötlu Karamellusósa Fersk ber Ís
Aðferð
Hitið grillið og stillið á vægan hita.
Takið smákökudeigið úr pakkningunni. Dreifið smákökudeiginu í eina stóra smáköku á álbakka sem þakinn er bökunarpappír.
Grillið smákökuna í 10-15 mínútur eða þar til hún er tilbúin.
Gott að bera fram með karamellusósu, ferskum berjum og ís eða hverju því sem hugurinn girnist.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes









Comments