top of page

BROWNIES MEÐ ÞRISTUM

  • Jan 3
  • 1 min read

„Chewy“ og ljúffengar brownies með Þristum. Þær innihalda kakó frá Kötlu og Þrista lakkríssúkkulaði sem passar sérlega vel saman. Mjög gott að bera fram með ís eða þeyttum rjóma og fullkomnar með kaffinu.

200 g smjör 5 dl sykur 3 msk kakó frá Kötlu 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt 1 msk vanilludropar frá Kötlu 4 egg 3,5 dl hveiti 1 poki Þristur

Aðferð

  1. Bræðið smjörið á vægum hita og hrærið sykrinum saman við. Passið að láta ekki bullsjóða.

  2. Hellið smjörblöndunni í skál og hrærið kakói, lyftidufti, salti og vanilldropum saman við. Mér finnst gott að nota hrærivélina.

  3. Hærið eggjunum saman við og að lokum hellið hveitinu út í og blandið vel saman.

  4. Hellið í eldfast form með bökunarpappír. Ég notaði 28×28.

  5. Skerið þrista í bita og dreifið jafnt yfir kökuna.

  6. Bakið í um 30 mínútur við 180°C. Kakan á að vera frekar blaut í miðjunni eða „chewy“.





Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Kötlu

Comments


bottom of page