SJÓNVARPSKAKA
- Jan 3
- 1 min read
Hver elskar ekki klassísku og góðu sjónvarpskökuna a.k.a. Lazy daisy? Þessi kaka er í uppáhaldi hjá fjölskyldunni minni og ég er oft beðin um að gera þessa. Einnig er hún mín uppáhalds en ég hef þróað þessa uppskrift í gegnum tíðina. Í henni er mikið af kókoskaramellu en mér finnst hún aðalatriðið. Kakan er dásamlega mjúk, karamellan stökk og er hún afar ljúffeng með ísköldu mjólkurglasi eða góðum kaffibolla.

2 egg 150 g sykur 1 tsk vanilludropar frá Kötlu 125 g hveiti 1 tsk lyftiduft 30 g brætt smjör 80 ml mjólk Kókoskaramella 140 g smjör 120 g kókos 130 g púðursykur frá Kötlu 1 dl rjómi
Aðferð
Þeytið egg og sykur þar til blandan verður ljós og létt.
Sigtið saman við hveiti og lyfitdufti og hrærið varlega saman.
Hellið vanilludropum, smjörinu og mjólkinni út í og blandið varlega við.
Hellið deiginu í 22-26 cm smurt kökuform. Mér finnst þægilegt að setja smjörpappír í botninn.
Bakið í 15-20 mínútur við 180°C.
Á meðan kakan bakast þá er gott að útbúa karamelluna. Blandið smjöri, kókosmjöli, púðursykri og rjóma í pott og hitið í ca. 5-8 mínútur.
Dreifið karamellunni á kökuna og bakið í aðrar 12-15 mínútur. Mjög gott að bera kökuna fram með þeyttum rjóma.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Kötlu











Comments