top of page

SHAKSHUKA MEÐ RICOTTA OSTI

  • Oct 8, 2025
  • 1 min read

Afar gómsætur réttur sem er tilvalinn í brönsinn. Þetta er nú alls ekki hefðbundinn Shakshuka réttur en mér finnst þessi útgáfa miklu betri! Ferskir tómatar, laukur, egg, kryddjurtir og ricotta ostur borið fram með ristuðu súrdeigsbrauði. Einfalt og bragðgott. Mér finnst mjög gott að bera réttinn fram með góðu cava.


Fyrir 2-3 500 g litlir ferskir tómatar t.d. kokteiltómatar 1 lítill laukur Ólífuolía 3 hvítlauksrif Krydd: Paprikuduft, chili, salt og pipar 4 egg 5-6 msk ricotta ostur (fæst t.d. í Krónunni) Ferskar kryddjurtir: T.d. steinselja, oregano og timían Toppa með: ferskum kryddjurtum og vorlauk


Aðferð

  1. Skerið tómata, lauk og ferskar kryddjurtir smátt.

  2. Steikið tómatana og laukinn uppúr ólífuolíu á pönnu. Pressið hvítlauk út í og bætið kryddi og kryddjurtum saman við.

  3. Hrærið öllu vel saman og látið malla í 5-7 mínútur eða þar til tómatarnir eru orðnir vel mjúkir og maukaðir. Gott að loka pönnunni með loki.

  4. Brjótið eggin út í tómatana og dreifið ricotta ostinum yfir. Lokið pönnunni og látið eggin eldast í um 3-4 mínútur eða þar til þau eru eins og þið viljið hafa þau. Mér finnst best að hafa rauðuna fljótandi.

  5. Berið fram með súrdeigsbrauði og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page