top of page

EGG BENEDICT

  • Sep 15, 2025
  • 1 min read

Einn af mínum uppáhalds bröns réttum er egg benedict og hér deili ég með ykkur myndbandi og uppskrift sem ég gerði í samstarfi við Pagen. Ristað Hönö brauð frá Pagen með avókadó, hleyptu eggi, flauelismjúkri hollandaise sósu og steinselju. Svo gott! 


Það er því tilvalið að hafa það extra notalegt um helgina og útbúa þennan bragðgóða og klassíska rétt! 

Fyrir einn 1 ristuð brauðsneið frá Hönö Pagen Avókadó – skorið í sneiðar Smjör 1 egg 1 msk matreiðslu edik Salt og pipar Steinselja

Hollandaise sósa 100 g smjör 1 eggjarauða 1/2 tsk safi úr sítrónu 1/2 tsk vatn Salt og pipar

Aðferð

  1. Hitið vatn í potti. Brjótið egg í litla skál. Hellið egginu varlega í vatnið þegar það er orðið sjóðandi heitt en alls ekki bullsjóðandi. Notið skeið til að halda egginu á sínum stað. Látið það sjóða í 3 mínútur og veiðið það upp úr með ausu.

  2. Smyrjið smjöri á ristaða Hönö brauðsneið og dreifið avókadó yfir hana.

  3. Tyllið egginu ofan á og saltið og piprið eftir smekk. 

  4. Að lokum dreifið sósunni yfir og steinselju.

Hollandaise sósa

  1. Hitið smjörið í potti.

  2. Þeytið eggjarauður, safa úr sítrónu og vatn í töfrasprota þar til blandan verður þykk og ljósari.

  3. Hellið heitu smjörinu í mjórri bunu í eggjablönduna og þeytið með töfrasprotanum á meðan. Saltið og piprið eftir smekk.



Verð ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page