top of page

RISTAÐ SÚRDEIGSBRAUÐ & SÚKKULAÐISNÚÐAR

  • Oct 2, 2025
  • 2 min read

Updated: Oct 20, 2025

Ljúffengur og fljótlegur bröns sem klikkar ekki. Ristað súrdeigsbrauð með ofnbökuðum tómötum, ostaeggjum og avókadó og smjördeigssnúðar fylltir með súkkulaðismyrju. Ég elska svona heimagerðan bröns á sunnudögum.


Ristað súrdeigsbrauð Smjör eftir smekk Avókadó eftir smekk Sesamblanda krydd

Ofnbakaðir tómatar 200-250 g kokteiltómatar 1 msk ólífuolía 2 msk ferskt oregano, smátt skorið 2 msk fersk basilika, smátt skorið Salt & pipar

Egg með osti 6 egg Ólífuolía til steikingar 1 dl rifinn cheddar ostur ½ rifinn parmesan ostur Salt og pipar

Aðferð

  1. Skerið tómatana í bita og blandið saman við 1 msk ólífuolíu, oregano, basiliku, salti og pipar. Dreifið þeim í lítið eldfast mót.

  2. Bakið tómatana í ca. 10-15 mínútur við 190°C.

  3. Pískið eggin í skál og steikið upp úr ólífuolíu. Blandið ostinum saman við í lokin og setjið í skál.

  4. Smyrjið brauðsneiðarnar með smjöri, dreifið eggjum, tómötum og avókadó yfir. Kryddið með sesamkryddinu og njótið.


Uppskrift gerir 6 snúða 4 smjördeigsplötur (frosnar frá t.d. Findus) 2-4 msk súkkulaðismyrja 1 pískað egg

Aðferð

  1. Leggið smjördeigsplöturnar á borð og notið kökukefli til að stækka deigið lítillega.

  2. Dreifið nutella jafnt á tvær smjördeigsplötur og leggið hinar ofan á svo úr verði samloka með súkkulaði á milli.

  3. Skerið í sex strimla og snúið uppá þá. Búið til snúða úr þeim með því að mynda hring.

  4. Penslið með eggi og bakið í ofni við 200°C í ca. 20 mínútur eða þar til snúðarnir eru orðnir gylltir.

Ristað súrdeigsbrauð meða ostaeggjum og bökuðum tómötumDásamlegt ristað súrdeigsbrauð sem ég hef margoft útbúið um helgar og slær alltaf í gegn. Ég á nánast alltaf til frosið súrdeigsbrauð í frystinum sem mér finnst frábært að nota í þetta.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page