BANANA MUFFINS
- Oct 8, 2025
- 1 min read
Svo gómsætar muffins sem klikka ekki. Inniheldur banana kanil, haframjöl, súkkulaði og fleira góðu. Tekur enga stund að skella í þessar. Gaman að útbúa með börnunum og þeim finnst þetta mjög gott.

Uppskrift gerir 12 muffins 100 g smjör, brætt 1/2 dl hunang 2 tsk vanilludropar 2 egg 3 þroskaðir bananar, stappaðir 1/2 dl mjólk 1 dl haframjöl 3 dl fínt spelt 1/2 tsk kanill 2 tsk lyftiduft 1/2 tsk matarsódi 150 g suðusúkkulaði
Crumble 3 msk kalt smjör 2 dl haframjöl 2 msk fínt spelt
Aðferð
Skerið súkkulaðið í litla bita og stappið banana.
Blandið saman bræddu smjöri, hunangi og vanilludropum.
Bætið svo saman við eggjum, bönunum og mjólk.
Því næst hrærið haframjöli, spelti, kanil, lyftidufti og matarsóda saman við.
Bætið súkkulaðinu varlega saman við allt.
Dreifið deiginu í 12 muffinsform.
Notið hendurnar í það að blanda saman í crumble, kalt smjör, haframjöl og spelt.
Dreifið crumble blöndunni jafnt yfir muffins deigið og bakið í ofni í 20 mínútur við 180°C á blæstri. Mér finnst gott að stinga í þær með tannstöngli til að sjá hvort að þær eru fullbakaðar og svo bara að njóta! ♥


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti















Comments