top of page

EINFÖLD AFMÆLISKAKA MEÐ KARAMELLUKREMI

  • Jan 3
  • 1 min read

Ég gerði þessa dásamlegu súkkulaðköku með karamellukremi í 2 ára afmælinu hennar Eddu. Ég notaði súkkulaðikökumixið frá Kötlu sem mér finnst svo gott og gerði mjög gott krem. Ég elska kökur en að skreyta þær hefur ekki verið mín deild. En þessi kaka heppnaðist mjög vel og það besta við hana er að hún er svo fljótleg. Ég bakaði kökubotnana daginn áður en útbjó kremið samdægurs. Skreytti hana með kreminu og rosegold kökuskrauti. Einföld og svakalega ljúffeng! 

Kaka (bökunarleiðbeiningar frá Kötlu) Súkkulaðikaka þurrefnablanda frá Kötlu 3 egg 80 ml ólífuolía 275 ml kalt vatn

Krem 150 g ljósar karamellur 5-6 msk rjómi 300 g smjör við stofuhita 500 g flórsykur frá Kötlu

Aðferð

  1. Hellið vatni og olíu í skál, síðan innihaldi pakkans og eggjum. Hrærið á meðalhraða í 2 mínútur. 

  2. Hitið ofninn í 180°C. Dreifið deiginu í tvö vel smurð kökuform (ég notaði 20 cm smelluform). Bakið í 18-20 mínútur. Kælið kökuna og smyrjið kreminu á hana þegar hún er orðin köld.

Krem

  1. Byrjið á því að bræða karamellur og rjóma og kælið. Bætið meiri rjóma saman við ef að ykkur finnst blandan of þykk.

  2. Þeytið smjörið. Ég nota hrærivél en líka hægt að nota handþeytara.

  3. Bætið flórsykrinum saman við og hrærið þar til blandan verður ljós og létt.

  4. Hellið karamellusósunni út í og hrærið sama við.

  5. Smyrjið kremið á kökuna og skreytið eftir smekk.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Kötlu

Comments


bottom of page