top of page

FYLLT BRAUÐ MEÐ OSTI & GRASLAUK

  • Jan 3
  • 1 min read

Fyllt brauð eða „Pull apart“ þar sem ég sker raufar í brauðið og fylli það með nóg af osti. Baka brauðið og toga bitana út. Fullkominn puttamatur og tilvalið að bera fram í þeim veislum eða matarboðunum sem framundan eru. Fyllingin er einföld og gómsæt en hún samanstendur af Philadelphia rjómaosti með graslauk, mozzarella osti, cheddar osti, hvítlaukssmjöri og ferskum graslauk.


Súrdeigsbrauð, óskorið 1 dós Philadelphia rjómaostur með graslauk/kryddi 1½ dl rifinn cheddar ostur 1½ dl rifinn mozzarella ostur 1-2 msk ferskur graslaukur (má sleppa eða nota steinselju) 30 g brætt smjör til að pensla 1 hvítlauksrif

Aðferð: 

  1. Skerið raufar í brauðið þannig að þær myndi kassalaga bita. 

  2. Blandið saman rjómaosti, 1 dl cheddar osti, 1 dl mozzarella osti og smátt skornum graslauk. 

  3. Smyrjið blöndunni vel í allar raufarnar.

  4. Pakkið brauðinu inn í álpappír og bakið í ofni í 15-17 mínútur við 180°C.

  5. Takið álpappírinn af og dreifið ½ dl mozzarella osti og ½ dl cheddar osti yfir raufarnar. Bakið í 5-10 mínútur í viðbót.

  6. Takið ykkur brauðbita með því að toga í brauðið meðfram raufunum og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page