top of page
Search


FYLLT BRAUÐ MEÐ OSTI & GRASLAUK
Fyllt brauð eða „Pull apart“ þar sem ég sker raufar í brauðið og fylli það með nóg af osti. Baka brauðið og toga bitana út. Fullkominn puttamatur og tilvalið að bera fram í þeim veislum eða matarboðunum sem framundan eru. Fyllingin er einföld og gómsæt en hún samanstendur af Philadelphia rjómaosti með graslauk, mozzarella osti, cheddar osti, hvítlaukssmjöri og ferskum graslauk. Súrdeigsbrauð, óskorið 1 dós Philadelphia rjómaostur með graslauk/kryddi 1½ dl rifinn cheddar ostur


STÖKKAR GRÆNMETIS TOSTADAS
Einfaldur réttur sem þið verðið að prófa! Stökkar tortillur með dásamlegu krydduðu grænmeti og kjúklingabaunum, bræddum osti og gómsætri sósu. Trixið til að ná tortillunum svona extra stökkum og ljúfum er að steikja þær upp úr ólífuolíu, dreifa osti yfir og baka inn í ofni. Fyrir 2 4 dl blómkál, smátt skorið 2 dl sveppir, smátt skornir 1 portobello sveppur, smátt skorinn (má sleppa eða nota meiri sveppi) 2 dl kjúklingabaunir 1 dl skarlottulaukur, smátt skorinn 2 msk ólífuolí


DJÚSÍ OSTABRAUÐSTANGIR
Ef að þið viljið gera eitthvað djúsi og súper gott þá eru þessar ostabrauðstangir algjörlega málið! Mæli með að borða þær volgar og rífa...


DÁSAMLEG OSTAFRITTATA
Það er dásamlegt að útbúa sjálfur bröns um helgar og bjóða vinum og fjölskyldu. Hér er uppskrift að fritatta með 4 tegundum af ostum sem...
bottom of page