DÁSAMLEG OSTAFRITTATA
- Sep 15, 2025
- 1 min read
Það er dásamlegt að útbúa sjálfur bröns um helgar og bjóða vinum og fjölskyldu. Hér er uppskrift að fritatta með 4 tegundum af ostum sem er tilvalin í helgarbrönsinn. Frittata er ítölsk eggjakaka sem er fyrst elduð á pönnu og svo er hún bökuð í ofni. Mæli með að bera þetta fram með fersku salati. Þetta er alveg dásamlega gott!

Uppskrift fyrir 4-6 6 egg 250 ml rjómi 1 dl rifinn parmesan ostur Salt og pipar Cayenne pipar 1 tsk olía (ólífuolía eða avocado olía) 20 gr smjör 2 dl rifinn cheddar ostur 1 dl kotasæla 1 dl rifinn mozzarella ostur 1 msk steinselja
Aðferð
Hrærið egg, rjóma, parmesan, cayenne pipar, salt og pipar saman.
Hitið olíu og smjör á 20 – 25 cm pönnu sem má fara inn í ofn og stillið á vægan hita. Bræðið smjör og olíu á pönnunni.
Hellið síðan eggjablöndunni á pönnuna og látið malla í 5-7 mínútur.
Því næst dreifið cheddar osti, kotasælu og mozzarella yfir blönduna og eldið í 12 mínútur.
Dreifið steinseljunni yfir og bakið inn í ofni í 10 mínútur við 180°C. Toppið með rifnum parmesan osti. Berið fram með fersku salati.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments