MONKEY BREAD MEÐ NÓG AF OSTI
- Sep 15, 2025
- 2 min read
Bakað pizzadeig með cheddar osti, parmesan, blaðlauk, hvítlauk og steinselju er afar einfalt að útbúa og svakalega gott. Monkey bread er brauð sem er samansett úr litlum brauðbitum þannig að hægt er toga bitana úr. Skemmtilegt að bera fram í veislum eða boðum. Ég útbjó þetta í gær og vá hvað brauðið var fljótt að hverfa ofan í okkur. Namm! Mæli með að prófa þetta. Ég notaði pizzadeig frá Brauð & Co en annars er örugglega mjög gott að nota pizzadeig sem fæst í matvöruverslunum eða gera það bara sjálfur.

1 pkn tilbúið pizzadeig 150 g rifinn cheddar ostur 80 ml rifinn parmesan ostur 50 ml smjör, rifið með rifjárni 80 ml blaðlaukur, smátt skorinn 60 ml fersk steinselja, smátt skorin 2 pressuð hvítlauksrif Cayenne pipar Salt og pipar
Aðferð
Hitið ofninn í 200°C
Blandið saman cheddar osti, parmesan osti, smjöri, blaðlauk, steinselju, hvítlauksrifi og kryddi í skál. Hrærið vel saman. Takið ca. ¼ af ostablöndunni til hliðar.
Þrýstið deiginu aðeins út með höndunum svo það verði kassalaga. Skerið það í 6-8 lengjur og skerið síðan þvert á lengjurnar svo úr verði litlir bitar. Bitarnir eiga að vera í kringum 3 cm.
Blandið deiginu saman við ostablönduna þannig að hver biti verður þakinn osti.
Smyrjið eldfast form eða pönnu sem má fara inn í ofn og raðið deiginu í það.
Slökkvið á ofninum þegar það eru ca. 10 mínútur þangað til þið setjið deigið í hann. Setjið álpappír yfir formið og látið deigið hefast í heitum ofninum í 20 mínútur.
Takið álpappírinn af og kveikið aftur á ofninum. Stillið á 190°C og bakið í 18-20 mínútur.
Dreifið restinni af ostinum yfir og bakið í 7-10 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.
Berið brauðið fram heitt og njótið!




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments