DÁSAMLEGIR PIZZASNÚÐAR
- Sep 15, 2025
- 2 min read
Mjúkir, flöffý og dásamlega bragðgóðir pizzasnúðar með fyllingu sem inniheldur beikonsmurost, tómatpúrru, lauk, sýrðan rjóma, oregano og cheddar ost. Þetta er ekki þessi týpíski pizzasnúður en gefur honum ekkert eftir. Að mínu mati finnast mér þessir miklu betri og þeir voru borðaðir upp til agna á einum degi á mínu heimili! Þið hreinlega verðið að prófa!

Uppskrift gerir 14-16 pizzasnúða
400 g hveiti
1 tsk salt
1 bréf ger (12 g)
40 g smjör
1 msk hunang
1 dl vatn
0,8 dl mjólk
1 egg
Fylling:
20 g smjör
2 skarlottulaukar, smátt skornir
140 g tómatpúrra
1 pkn beikonsmurostur (má vera annar smurostur)
1 msk sýrður rjómi
Oregano
Salt og pipar
Toppa með: Cheddar osti Oregano
Aðferð:
Blandið saman hveiti, salti og geri.
Bræðið smjörið og blandið saman við hunang, vatn og mjólk. Passið að blandan verði ekki of heit!
Hrærið smjörblöndunni saman við hveitiblönduna og bætið síðan egginu saman við.
Hnoðið vel saman með höndunum eða í hrærivélinni þangað til að deigið er komið saman.
Smyrjið skál með olíu, látið deigið ofan í og leggið viskustykki yfir. Látið deigið hefast í skálinni í klukkustund.
Gerið fyllinguna á meðan deigið er að hefast. Bræðið smjör í potti og steikið skarlottulaukinn þar til hann mýkist aðeins.
Bætið við smurostinum, tómatpúrrunni, sýrðum rjóma, oregano, salti og pipar og hrærið vel saman.
Fletjið deigið út. Mér finnst gott að fletja það á smjörpappír en það er líka fínt að gera það beint á borðið. Smyrjið fyllingunni yfir deigið og stráið cheddar osti yfir. Rúllið deiginu upp og skerið í kringum 14-16 bita.
Smyrjið eldfast mót og raðið snúðunum í það. Passið að hafa smá bil á milli þeirra.
Stráið cheddar osti og oregano yfir snúðana og bakið í ofni við 180°C í 20-25 mínútur eða þar til snúðarnir eruð orðnir gylltir og fallegir.



Njótið vel! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments