top of page

FYLLTAR OFNBAKAÐAR KARTÖFLUR MEÐ CHILI BAUNUM & OSTI

  • Feb 9
  • 1 min read

Bakaðar kartöflur fylltar með bráðnum osti og bökuðum chili baunum? Já, takk! Fullkominn réttur sem er bæði einfaldur og ótrúlega bragðgóður. Kvöldmatur, bröns eða hádegismatur, gengur í allt saman. Ég toppa réttinn með graslaukssósu sem setur punktinn yfir i-ið. Ef þið viljið extra djúsí útgáfu, þá er beikon klárlega málið!


Fyrir tvo

2 stórar bökunarkartöflur 2 msk smjör 4 msk Heinz bakaðar chili baunir Rifinn Havarti ostur eftir smekk Rifinn Cheddar ostur eftir smekk

Graslaukssósa

2 dl sýrður rjómi 2 msk saxaður graslaukur 1 tsk laukduft ½ tsk hvítlauksduft Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C. Vefjið kartöflunum í álpappír og bakið í um 60 mínútur eða þar til þær eru mjúkar í gegn.

  2. Þegar kartöflurnar eru tilbúnar, skerið kross í miðjuna og opnið varlega.

  3. Setjið smjör ofan í kartöfluna og blandið varlega saman með gaffli. Fyllið hana með rifnum osti og chili baunum. Stráið meiri osti yfir og setjið aftur inn í ofn í 5-10 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn og gullinbrúnn.

  4. Blandið saman sýrðum rjóma, saxuðum graslauk, salti, pipar, hvítlauksdufti og laukdufti í litla skál.

  5. Toppið kartöflurnar með sósunni og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page