top of page

SESAR SALAT VEFJUR

  • Feb 9
  • 1 min read

Það er ekki að ástæðulausu að Sesar salat sé vinsælt. Stökkt beikon, safaríkur kjúklingur, parmesan og djúsí dressing er blanda sem klikkar ekki! Hér er vefju útgáfan sem er fullkomin í hádeginu eða sem léttur kvöldmatur. Ég steiki vefjuna á pönnu í lokin svo hún verði stökk og Havarti osturinn inni í honum bráðni aðeins, ótrúlega gott! 


Fyrir 4 stórar tortillur

1 stór romain salathaus, skorinn niður

150 g stökksteikt beikon, smátt skorið

2 kjúklingabringur, eldaðar og smátt skornar

4 stórar tortillur

4 msk rifinn Havarti ostur

Sósa

2 dl Heinz majónes

2 ansjósur úr dós

1 msk dijon sinnep

2 hvítlauksrif eða 1 tsk hvítlauksduft

1 dl rifinn parmesan ostur

Safi úr 1 sítrónu

Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Setjið öll hráefnin fyrir sósuna í hátt ílát og blandið saman með töfrasprota þar til sósan er silkimjúk.

  2. Blandið saman romain salati, sósunni, stökku beikoni og kjúklingnum í skál þar til allt er vel hjúpað.

  3. Stráið 1 msk rifnum Havarti osti yfir hverja tortillu.

  4. Dreifið um 1,5-2 dl eða eftir smekk af salatblöndunni ofan á ostinn. Rúllið tortillunni þétt saman.

  5. Hitið pönnu á meðalháum hita og steikið hverja vefju í um 1-2 mínútur á hvorri hlið, eða þar til hún verður létt stökk og osturinn inni í henni byrjar að bráðna.

  6. Skerið vefjuna í tvennt og njótið vel!



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes


Comments


bottom of page