top of page

BLT SAMLOKA MEÐ BBQ SÓSU

  • Feb 9
  • 1 min read

Það er eitthvað við stökkt brauð, bráðinn ost, safaríkan kjúkling og stökkt beikon sem er ómótstæðilegt! Þessi BLT samloka er næsta skref upp frá klassíkinni með tvöföldum osti, Heinz BBQ sósu og Heinz majónesi sem lyftir þessu á annað level.


Fyrir 2 samlokur

4 sneiðar súrdeigsbrauð

2 msk ólífuolía

4-6 sneiðar Havarti ostur

1 dl rifinn Cheddar ostur

2 msk Heinz majónes

2 msk Heinz BBQ sósa

4 stórar tómatsneiðar

1-2 kjúklingabringur, eldaðar og skornar í sneiðar

6 sneiðar stökkt beikon

2 romain salatblöð

Aðferð:

  1. Hitið pönnu á meðalháum hita og steikið brauðsneiðarnar upp úr ólífuolíu. Steikið í 2-3 mínútur á annarri hliðinni þar til þær verða gylltar og stökkar.

  2. Snúið brauðsneiðunum við og leggið strax 2-3 sneiðar af Havarti osti og ½ dl rifinn Cheddar ost á hverja samloku. Steikið þar til brauðið er orðið stökkt og osturinn byrjar að bráðna.

  3. Dreifið Heinz majónesi og Heinz BBQ sósu á annan helming brauðsneiðanna.

  4. Leggið romain salat yfir sósuna, bætið stórum tómatsneiðum ofan á og setjið síðan sneiddar kjúklingabringur yfir.

  5. Raðið stökku beikoni yfir kjúklinginn og leggið hina brauðsneiðina yfir til að loka samlokunni.

  6. Berið fram strax, eða skerið samlokuna í helminga. Berið fram með sósunum og njótið vel.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes


Comments


bottom of page