SÚPERNACHOS
- Feb 18
- 2 min read
Ofnbakað nachos með nautahakki, svörtum baunum, salsa, rjómaostablöndu, ferskum blaðlauk, tómötum, papriku og svo nóg af cheddar- og havartiosti. Það er einnig gott að bæta við maís.
Toppa svo með avókadó, kóríander og smá chiliflögum. Þessi réttur er kominn beint frá mömmu og hefur verið í uppáhaldi hjá okkur lengi. Nú er hann líka fastur liður hjá mér. Einfaldur, góður og alltaf vinsæll.

Fyrir 4 500 g nautahakk Krydd: 1 tsk salt, 1/2 tsk pipar 1 tsk laukduft 1 tsk hvítlauksduft 1 tsk cumin ½ dós svartar baunir (110 g) 230 g salsasósa
1 pk Philadelphia (200 g) 2 dósir sýrður rjómi (360 g)
250 g nachos 1 blaðlaukur, smátt saxaður (ca. 1½ dl) 250 g smátómatar, skornir í bita ½ rauð paprika, smátt skorin 200 g rifinn cheddar 300 g rifinn havarti 2 avókadó Ferskur kóríander
Lime Chiliflögur
Aðferð
Steikið nautahakkið á pönnu þar til það er vel brúnað. Kryddið með salti, pipar, laukdufti, hvítlauksdufti og cumin.
Bætið svörtum baunum og salsasósu saman við og látið malla í nokkrar mínútur. Smakkið ykkur til og kryddið meira eftir smekk ef ykkur finnst það þurfa.
Hrærið saman rjómaosti og sýrðum rjóma í skál.
Dreifið nachos-i á stóra ofnplötu eða í eldfast mót þakið bökunarpappír.
Dreifið kjötblönduna jafnt yfir og rjómaostablöndunni yfir kjötið. Stráið síðan blaðlauk, papriku og tómötum jafnt yfir.
Dreifið cheddar og havarti osti yfir allt og bakið í ofni við 190°C í 15-20 mínútur, eða þar til osturinn er bráðnaður og gullinn.
Takið nachosið úr ofninum og toppið með avókadó, ferskum kóríander og chiliflöggum eftir smekk.
Berið fram strax og njótið. Gott að vera með sýrðan rjóma til hliðar.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes

















Comments