top of page

CHEDDAR NACHOS MEÐ KJÚLKING

  • Jan 2
  • 2 min read

Okey nammi! Þetta verðið þið bara að prófa. Ég notaði vinsæla Finn Crisp snakkið með cheddar bragði sem er hollari kostur og gerir réttinn svo bragðgóðan. Nóg af havarti- og cheddar osti ásamt kjúkingi og svörtum baunum með chipotle, tómötum, jalapeno sýrðum rjóma og avókadó. Ótrúlega góð blanda sem klikkar ekki. 

1 pkn Finn Crisp snakk með cheddar 4 dl kjúklingur, rifinn eða smátt skorinn (ég keypti tilbúinn kjúkling með salt og pipar) 2 dl svartar baunir 3 msk chipotle mauk Salt og pipar eftir smekk 3 dl rifinn havarti ostur, ríf hann sjálf 3 dl rifinn cheddar ostur 250 g kokteiltómatar eða aðrir litlir tómatar, skornir í litla bita 2 avókadó 1-2 msk safi úr lime Lime bátar eftir smekk Kóríander eftir smekk Sýrður rjómi með jalapeno 180 g sýrður rjómi 2 msk smátt skorið jalapeno úr dós Safi úr ½ lime Salt og pipar eftir smekk

Aðferð

  1. Byrjið á því að blanda saman kjúklingi, svörtum baunum, chipotle mauki (setjið minna ef að þið viljið hafa þetta mildara), salti og pipar.

  2. Dreifið snakkinu á bökunarplötu þakta bökunarpappír eða í eldfast form.

  3. Dreifið 2 dl rifnum havarti osti og 2 dl cheddar osti yfir.

  4. Því næst setjið kjúklingablönduna og dreifið svo sýrða rjómanum yfir. Þið þurfið ekki að dreifa öllum sýrða rjómanum, gott að eiga smá til bera fram með.

  5. Að lokum dreifið tómötum og stráið restinni af ostinum yfir.

  6. Bakið inní ofni í 10-12 mínútur við 180°C.

  7. Stappið avókadó saman við safa úr lime. Saltið og piprið eftir smekk.

  8. Dreifið avókadó, lime bátum og kóríander yfir réttinn og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Ísam

Comments


bottom of page