TACO HRÍSGRJÓN Á EINNI PÖNNU
Einfaldur og bragðgóður kvöldmatur sem er fullkominn á annasömum virkum dögum. Allt eldað á einni pönnu og toppað með avókadó, sýrðum rjóma, kóríander og stökkum nachosflögum. Svo er hann ekki síðri daginn eftir og tilvalinn í nesti.

500 g nautahakk 1 msk ólífuolía 1 laukur 1 rauð paprika 2 hvítlauksrif 2 msk taco krydd
1½ msk tómatpúrra 2 ½ dl ósoðin basmati hrísgrjón 1 pkn Krónan lífrænt tómatar maukaðir (390 g)
4 dl vatn
1 1/2 tsk Oscar nautakraftur
1 pkn Krónan lífrænt svartar baunir (390 g) 150 g cheddarostur, rifinnsalt og pipar eftir smekk
Toppa með:
1 avókadó Sýrður rjómi Ferskt kóríander
Lime
Nachosflögur eftir smekk
Aðferð
Skerið laukinn og paprikuna smátt og pressið hvítlaukinn.
Hitið ólífuolíu á stórri, djúpri pönnu og steikið nautahakkið þar til það hefur tekið góðan lit.
Bætið lauk og papriku út á pönnuna og steikið í 3–4 mínútur. Bætið hvítlauk, tómatpúrru, taco kryddi og reyktu paprikukryddi saman við og steikið áfram í um 30 sekúndur.
Bætið hrísgrjónum, hökkuðum tómötum, vatni og nautakrafti út á pönnuna. Hrærið öllu vel saman og látið suðuna koma upp.
Lækkið hitann, setjið lok á pönnuna og látið malla við vægan hita í 20-25 mínútur, eða þar til hrísgrjónin eru elduð og hafa tekið í sig vökvann. Forðist að hræra mikið á meðan. Ef grjónin þurfa lengri eldun en vökvinn er nánast horfinn, bætið ¼–½ dl af heitu vatni við eftir þörfum.
Skolið svörtu baunirnar vel og látið renna af þeim. Hrærið þeim varlega saman við hrísgrjónin og smakkið til með salti og pipar.
Dreifið cheddar ostinum yfir, setjið lokið aftur á og látið standa á vægum hita í 2–3 mínútur, eða þar til osturinn er bráðnaður. Takið pönnuna af hitanum og látið standa undir loki í 3–5 mínútur.
Toppið með avókadó, sýrðum rjóma, fersku kóríander, lime og nachosflögum.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Krónuna



Comments