BUTTER CHICKEN
- 6 days ago
- 2 min read
Þessi réttur er eldaður reglulega á mínu heimili og klikkar aldrei! Rjómalagaður kjúklingur í tómat og kryddblöndu sem ég ber fram með túrmerik hrísgrjónum, raita og naan brauði. Mér finnst mjög gott að para þetta með góðu rauðvíni. Ef þið hafið tíma mæli ég líka með að útbúa naan brauðið sjálf, það er extra gott og þið finnið uppskriftina hér.

Fyrir 4
1 kg úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry
2 msk garam masala
1 tsk engiferduft
1 tsk hvítlauksduft 1/2 tsk chiliflögur
1 tsk salt
1/4 pipar
1,5 dl jógúrt
1 msk ólífuolía
Sósan:
2 msk smjör
1 stór laukur, sneiddur
1½ tsk engiferduft
3 hvítlauksgeirar
1 dós (ca. 400 g) heilir tómatar frá Hunts
2 msk tómatpaste frá Hunts
½ tsk garam masala
1 tsk chili flögur
1½ tsk kóríander duft
1½ tsk cumin duft
1½ tsk sykur (einnig gott að nota hunang)
1,5 dl rjómi
Raita sósa 1 dós hrein jógúrt 1/2 agúrka, smátt skorin
1/4-1/2 tsk garam masala
Salt eftir smekk
Aðferð
Blandið saman garam masala, engiferdufti, hvítlauksdufti, chili, salti, pipar, jógúrti og ólífuolíu. Setjið kjúklinginn út í og látið marinerast í að minnsta kosti 20 mínútur (helst lengur, ég geri það stundum daginn áður).
Steikið kjúklinginn uppúr smjöri eða olíu þar til hann er eldaður og takið til hliðar
Hitið smjör á sömu pönnu og steikið lauk þar til hann verður mjúkur og glær.
Bætið hvítlauki út í, kyrddunum og steikið stutt.
Setjið tómatana og tómatpaste og látið malla í nokkrar mínútur. Maukið síðan sósuna þar til hún verður silkimjúk (bætið smá vatni ef þarf). Ég notaði bara blender en einnig er hægt að nota töfrasprota eða matvinnsluvél.
Hellið sósunni yfir, bætið rjóma og sykri og látið malla þar til sósan þykknar.
Setjið kjúklinginn útí og berið fram með hrísgrjónum, naan brauði og raita.
Smá tips:
Gott er að bæta kanilstöng og túrmerik út í hrísgrjónin á meðan þau sjóða til að fá meira bragð og fallegan lit.
Mæli með að strá ferskum kóríander yfir réttinn þegar hann er tilbúinn.






Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes















Comments