top of page

BUFFALO SESARVEFJUR

4 days ago
1 min read

Ljúffeng vefja með buffalo kjúklingi, stökkum brauðteningum og sesarsalati. Fljótlegur og bragðgóður réttur sem við elskum!

Fyrir tvo

2 stórar Broken Taco tortillur 16-18 bitar frosinn kornflex kjúklingur frá Ali ½-1 dl Chick-fil-A buffalo sósa Rifinn mozzarella eða pizzaostur eftir smekk 4 dl romaine-salat, gróft skorið

Sesarsósa

½ dl Heinz majónes

1 dós sýrður rjómi (180 g)

1 tsk hvítlauksduft

½ tsk laukduft

2 msk sítrónusafi

1 tsk Dijon-sinnep

½ tsk Heinz Worcestershire sósa

1 dl rifinn parmesanostur

Salt og pipar eftir smekk

Brauðteningar

3 dl súrdeigsbrauð, rifið í litla bita (ég keypti súrdeigsbaguette) 1 msk ólífuolía 1/2 tsk hvítlauksduft Salt og pipar


Aðferð

  1. Hitið ofninn samkvæmt leiðbeiningunum á umbúðum kjúklingsins og eldið kjúklinginn þar til hann er stökkur og fulleldaður.

  2. Setjið brauðbitana í skál og blandið þeim saman við ólífuolíu, hvítlauksduft, salti og pipar. Dreifið þeim á ofnplötu þakta bökunarpappír og bakið við 190°C í um 6-8 mínútur, eða þar til þeir eru stökkir og gylltir.

  3. Blandið öllum hráefnunum í sesarsósuna saman. Smakkið til með salti, pipar og meiri sítrónusafa ef þess þarf.

  4. Veltið kjúklingnum upp úr buffalo sósunni.

  5. Blandið romain salatinu saman við brauðteningana og sósuna.

  6. Leggið vefjurnar á ofnplötu, dreifið pizzaostinum yfir þær og hitið í ofninum í 1–2 mínútur, rétt þar til osturinn bráðnar. Passið að vefjurnar verði ekki stökkar.

  7. Setjið buffalo kjúklinginn og sesarsalatið á tortillurnar. Rúllið þeim þétt saman og njótið.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Krónuna


Comments


bottom of page