ORZO MEÐ RISARÆKJUM & SÓLÞURRKUÐUM TÓMÖTUM
- May 28
- 2 min read
Silkimjúkt orzo pasta sem eldast beint upp úr bragðmiklu soði með lauk, hvítlauk, chili og sólþurrkuðum tómötum ásamt rjóma, parmesan, fersku spínati og risarækjum. Algjör bragðbomba sem er bæði einföld og ótrúlega góð. Psst… það er líka mjög gott að skipta rækjunum út fyrir kjúkling ef þið eruð meira í þannig stuði.

Fyrir 3-4
450 g risarækjur frá Fiskverzlun Hafliða 16/20, afþíddar og þerraðar 2–3 msk olía af sólþurrkuðum tómötum Salt og pipar Chili flögur eftir smekk 5 hvítlauksrif, pressuð eða smátt söxuð 2 msk smjör
1 gulur laukur, smátt skorinn
225 g orzo pasta frá Rummo 7 dl kjúklingasoð 1 dl rjómi
1 dl sólþurrkaðir tómatar, skornir niður 60–80 g baby spínat 1 1/2 dl rifinn parmesan ostur + meira til að bera fram með Fersk steinselja
Aðferð
Hitið olíuna af sólþurrkuðu tómötunum á stórri pönnu og steikið rækjurnar. Kryddið með salti, pipar og chili flögum ásamt þremur pressuðum hvítlauksrifum.
Steikið í 1-2 mínútur á hvorri hlið á miðlungshita eða þar til þær eru eldaðar í gegn. Takið þær af pönnunni og geymið til hliðar.
Setjið smjör út á pönnuna með olíunni sem situr eftir af rækjunum. Bætið lauknum út á og steikið þar til hann verður mjúkur.
Bætið tveimur hvítlauksrifum og chili flögum út á og steikið í um 1 mínútu.
Dreifið sólþurrkuðu tómötunum út á og steikið aftur í um 1 mínútu.
Setjið orzo pastað út á pönnuna og hrærið aðeins saman við laukinn, hvítlaukinn og tómatana.
Hellið kjúklingasoðinu saman við og látið malla við meðalhita án loks í um 7 mínútur. Hrærið reglulega í og bætið smá meira soði eða vatni út í ef þarf.
Blandið rjómanum saman við ásamt parmesan og spínati. Hrærið þar til osturinn bráðnar og spínatið fellur saman.
Smakkið réttinn til með salti, pipar og chili eftir smekk.
Setjið rækjurnar aftur út á pönnuna og blandið öllu varlega saman.
Stráið ferskri steinselju og extra parmesan yfir áður en þið berið fram.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Þú færð öll hráefnin í Krónunni Samstarf

















Comments