HEILL OFNBAKAÐUR KJÚKLINGUR MEÐ RJÓMAOSTASÓSU
- Jun 10
- 2 min read
Þetta er klassískur matur sem er tilvalinn á sunnudagskvöldi. Uppskrift sem ég hef margoft gert og klikkar aldrei. Safaríkur heill kjúklingur hægeldaður með lauk, gulrótum, sítrónum og hvítlauk. Síðan verður soðið í botninum að silkimjúkri rjómasósu sem er einn besti parturinn. Fullkomið með ofnbökuðum kartöflum, fersku salati og köldu hvítvíni.

Fyrir 4–6
1 heill kjúklingur (ca. 2 kg) 2–3 gulrætur 2 gulir laukar 1 heill kjúklingur 1 sítróna 5 dl vatn 2 msk Oscar kjúklingakraftur Ólífuolía 1–2 tsk ítölsk kryddblanda Salt og pipar 2 msk smjör
Sósa 1 msk smjör 1 msk hveiti Soðið úr pottinum 1–2 dl rjómi 1–2 msk Philadelphia rjómaostur 1/2–1 tsk dijon sinnep Meiri Oscar kjúklingakraftur eftir smekk Salt og Pipar
Aðferð
Hitið ofninn í 170°C.
Skerið gulrætur og einn og hálfan lauk í grófa bita. Setjið gulræturnar, laukinn og 1/2 hvítalauk í botninn á steypujárnspotti eða eldföstu móti.
Hitið vatnið og hrærið Oscar kjúklingakraftinum saman við þar til hann leysist upp. Hellið soðinu yfir grænmetið.
Skerið sítrónu í nokkra bita og setjið inn í kjúklinginn ásamt hálfum lauk (skorinn í bita) og hvítlauksrif úr hálfum hvítlauk. Nuddið kjúklinginn með ólífuolíu og kryddið vel með salti, pipar og ítalskri kryddblöndu.
Setjið kjúklinginn ofan á grænmetið, dreifið smjörinu yfir og lokið pottinum. Ef þið notið eldfast form má setja álpappír yfir. Bakið í 90 mínútur með loki.
Takið lokið af pottinum og ausið mestu af soðinu yfir í skál. Hækkið hitann í 220°C og bakið áfram í 20–30 mínútur eða þar til húðin verður fallega gyllt og stökk. Ef þið viljið extra stökka húð má setja grillið á síðustu 3–5 mínúturnar.
Takið kjúklinginn úr pottinum og leyfið honum að hvíla í 10–15 mínútur áður en hann er skorinn.
Bræðið smjör í litlum potti og hrærið hveitinu saman við. Látið malla í um 1 mínútu á meðan hrært er stöðugt.
Hellið soðinu smám saman út í og hrærið vel á milli svo engir kekkir myndist.
Bætið rjóma, rjómaosti, sinnepi og meiri Oscar kjúklingakrafti út í eftir smekk. Látið sósuna malla í nokkrar mínútur þar til hún verður silkimjúk og hæfilega þykk. Smakkið sósuna til með salti og pipar ef þarf.
Berið fram með ofnbökuðum kartöflum, fersku salati og köldu hvítvíni. Njótið.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



Comments