UPPÁHALDS OVERNIGHT GRAUTAR
- Oct 8, 2025
- 1 min read
Það er svo þægilegt að næla sér í tilbúinn graut úr ísskápnum á morgnana. Hér eru tvær dásamlegar og næringarríkar uppskriftir af grautum. Það er svo sannarlega gott að byrja daginn á þessum grautum sem gefa manni orku út í daginn. Hafragrautur með grískri jógúrt og bönunum og chia grautur með kókosmjólk og hindberjum.

Hafragrautur með grísku jógúrti og bönunum 1 dl haframjöl 1 dl vatn 1/2 dl grísk jógúrt 1/2 msk chia grautur 2 tsk sykurlaust síróp eða hunang 1/3 smátt skorinn banani Ristaðar möndluflögur og pekanhnetur Whole Earth hnetusmjör
Aðferð
Blandið saman haframjöli, vatni, grískri jógúrt og sírópi í krukku eða öðru íláti.
Geymið yfir nótt.
Toppið með ristuðum möndluflögum og pekanhnetum, smátt skornum banana og nóg af hnetusmjöri.

Chia grautur með kókosmjólk og hindberjum
3 msk chia fræ 2 dl sykurlaus kókosmjólk 1-2 tsk sykurlaust síróp eða hunang 1/2 dl frosin hindber Ristaðar kókosflögur Whole Earth hnetusmjör
Aðferð
Blandið saman chia fræjum, kókosmjólk og sírópi í krukku eða öðru íláti.
Geymið yfir nótt í ísskáp.
Toppið með ristuðum kókosflögum, frosnum hindberjum og nóg af hnetusmjöri.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti














Comments