EINFALT & GOTT HRÖKKBRAUÐ
- Oct 13, 2025
- 1 min read
Einfalt, gott og hollt hrökkbrauð sem allir geta gert heima. Mjög gott sem millimál með hummus og grænmeti eða öðru góðu áleggi. Ég elska að eiga þetta til í krukku heima. Mæli með!
1,5 dl Rapunzel sesamfræ 1,5 dl Rapunzel graskersfræ 1 dl Rapunzel sólblómafræ 1 dl Rapunzel gróft haframjöl 3,5 dl gróft spelt 1 ¼ dl Filippo Berio ólífuolía 2 dl vatn Saltflögur eftir smekk
Aðferð
Blandið öllum hráefnunum saman nema saltinu.
Dreifið blöndunni á bökunarpappír og fletjið þunnt út með því að leggja aðra örk af bökunarpappír yfir og rúlla varlega yfir með kökukefli.
Skerið í sneiðar og stráið saltflögunum yfir.
Bakið við 200°C í 15-20 mínútur.
Uppskriftin er gerð í samstarfi við Innnes


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments